Landeigendafélag Sléttu- og Grunnavíkurhrepps | fimmtudagurinn 17. maí 2012

Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps verður 30. maí 2012

Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps verður haldinn miðvikudaginn 30. maí kl. 17.00 í Borgartúni 37, Reykjavík, húsnæði Nýherja.


Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar.
  3. Lagabreytingar
  4. Stjórnarkjör.
  5. Kjör tveggja endurskoðenda til 2ja ára í senn og tveggja til vara.
  6. Tekin ákvörðun um árgjald til félagsins.
  7. Önnur mál.

Að loknum venjubundnum aðalfundarstörfum mun Jón Björnsson landvörður ræða um málefni Hornstrandafriðlands og svara spurningum fundarmanna.

Landeigendafélag Sléttu- og Grunnavíkurhrepps | fimmtudagurinn 10. maí 2012

Undirbúningur að gerð verndaráætlunar fyrir Hornstrandarfriðland hafinn

Hafinn er undibúningur að gerð verndaráætlunar fyrir Hornstrandafriðland. Landverðir Hornstrandafriðlandsins, Jón Björnsson og Jónas Gunnlaugsson, héldu í apríl rýnifund með ýmsum hagsmunaaðilum. Rætt var um gerð verndaráætlunar og hvernig væri best að standa að henni fyrir Hornstrandafriðlandið. Fundargerð rýnifundarins fylgir með frétt þessari.

...
Meira
Þyrla landhelgisgæslunnar í Hornvík. Mynd: Landhelgisgæslan.
Þyrla landhelgisgæslunnar í Hornvík. Mynd: Landhelgisgæslan.
1 af 4

Hornstrandafriðland 7. maí 2012 - Frá landverði.

 

Í gær voru Hornstrandir yfirflognar með þyrlu Gæslunnar. M.a. var skimað eftir ummerkjum um hvítabirni, snjó og aðstæður á svæðinu og ástandi þess yfirleitt. Engin merki fundust um bjarndýr og áttum við síður von á því, enda nokkur umferð búin að vera um friðlandið. Hinsvegar var talsvert af sleðaförum og ummerki um utanvegaakstur slíkra tækja (farið á snjólausu). Óheimilt er að fara á sleðum um friðlandið. Þá er friðlandið mjög snjólítið, ekki síst að norðanverðu og ófært fyrir sleða, nema ekið sé að hluta á auðri jörð, sem sumir hika reyndar ekki við að gera. Landið er frekar blautt og því viðkvæmt fyrir hverskonar umferð. Áfram verður fylgst með umferð vélsleða og annarra sem um friðlandið fara.

 

Talsverðir skaflar eru í skörðum og t.d. er ófær gönguleiðin um Skálakamb austan Hlöðuvíkur og lítið vit í að fara gangandi um svæðið sem stendur nema fólk sé þess kunnugara. Nú er tilkynningaskylda ríkjandi á svæðinu, þ.e. allir þurfa að tilkynna um ferðir sínar til Umhverfisstofnunar, nema landeigendur. Best er að hafa samband beint við Hornstrandastofu á Ísafirði, en skrifstofan er á horninu á Mánagötu og Hafnarstrætis. Síminn þar er 534 7590 eða gsm 822 4056. Tilkynningaskyldan er frá 15. apríl til 15. júní. Einnig má senda tölvupóst á netfangið hornstrandir (hjá) umhverfisstofnun.is.

 

Í Fljótavík, nánar tiltekið í vatninu sjálfu rákumst við á hvalshræ langt ofan Atlastaða. Sennilega er um sama hval að ræða og rak að landi í Fljótavík í ágúst í fyrra.

 

Jón Björnsson

Hornstrandanefnd | þriðjudagurinn 24. apríl 2012

Ferðir um Hornstrandafriðland snemmsumars

Fréttatilkynning Hornstrandafriðlandið 17. apríl 2012

Það styttist óðfluga í sumarið með tilheyrandi ferðalögum og atgangi. Áætlanir hefjast í Hornstrandafriðlandið í júní n.k., en einhverjir ferðamenn eru á faraldsfæti nyrðra nú þegar og eitthvað um fyrirspurnir.  Nær allan snjó tók upp af svæðinu í lok mars og var snjólaust á láglendi.  Aftur snjóaði í lok Páska, en sá snjór er blautur og hverfur sennilega hratt aftur. Landið er því blautt og mjög viðkvæmt yfirferða. Samkvæmt reglum friðlandsins þurfa nú allir ferðamenn sem fara á svæðið að tilkynna um ferðir sínar. Hornstrandastofa á Ísafirði tekur við slíkum meldingum og er hægt að hafa samband símleiðis í síma 591 2000 (biðja skal um Hornstrandastofu) eða með tölvupósti, netfang hornstrandir@umhverfisstofnun.is

 

Umrætt ákvæði nær þó ekki til landeigenda, en þeir mega að sjálfsögðu láta vita um ferðir sínar og fá þá meldingar ef eitthvað ber við á svæðinu s.s. ísbjarnarkomur og annað slíkt.  


Meðfylgjandi eru leiðbeiningar um ferðalög í Hornstrandafriðlandið snemmsumars svo og auglýstar reglur svæðisins.

   
Liðna helgi fóru fjölmargir ferðamenn á vélsleðum um friðlandið. Samkvæmt reglum friðlandsins er allur akstur vélknúinna ökutækja óheimill í friðlandinu án heimildar Umhverfisstofnunar.  Þetta ákvæði á einnig við um vélsleða.  Benda má vélsleðamönnum sem leita til ykkar með upplýsingar um snjóalög og annað slíkt á þetta ákvæði.  Hinsvegar geta þeir leitað heimildar Umhverfisstofnunar samkvæmt sömu reglum.

 

Jón Björnsson

Hornstrandanefnd | þriðjudagurinn 3. janúar 2012

Fundur í Hornstrandanefnd 8. desember 2011

Hornstrandanefnd fundaði 8. desember 2011.

...
Meira
Hornstrandanefnd | þriðjudagurinn 7. júní 2011

Ársskýrsla Hornstrandafriðlandsins 2010

Skýrsla landvarðar Hornstrandafriðlandsins 2010 er nú aðgengileg á vefnum, undir Hornstrandanefnd, Skýrslur og fundargerðir, Hornstrandafriðland.

Hornstrandanefnd | mánudagurinn 6. júní 2011

Fundur í Hornstrandanefnd 6. júní 2011

Hornstrandanefnd fundaði 6. júní 2011.

...
Meira
Landeigendafélag Sléttu- og Grunnavíkurhrepps | mánudagurinn 30. maí 2011

Skýrsla stjórnar LSG fyrir tímabilið 25.05.2009 – 30.05.2011.

Skýrsla stjórnar Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps flutt á aðalfundi 30. maí 2011

...
Meira
Landeigendafélag Sléttu- og Grunnavíkurhrepps | mánudagurinn 30. maí 2011

Fundargerð aðalfundar Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps 30. maí 2011

Aðalfundur LSG var haldinn 30. maí. Dagskrá var skv. lögum félagsins. Gestur fundarins var Jón Björnsson landvörður í Hornstrandafriðlandi og flutti hann erindi um störf landvarðar. 

...
Meira
Landeigendafélag Sléttu- og Grunnavíkurhrepps | mánudagurinn 30. maí 2011

Skýrsla Þorvarðs Jónssonar um Samtök eigenda sjávarjarða, SES

Þorvarður Jónsson flutti aðalfundi LSG skýrslu um Samtök eigenda sjávarjarða

...
Meira
Fyrri síða
1
2Næsta síða
Síða 1 af 2
Eldri færslur
Vefumsjón